Fréttir og Spjall (News)
16.3.2010
Mottumars hjá Mokveiðifélaginu
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að það er mottumars
á íslandi í dag.
Mokveiðifélagar margir hverjir ætla ekki að láta sitt eftir liggja og safna
smá hormottu í tilefni þess.
Rock er að verða eins og klipptur úr vilta vestrinu.
Magnum44 er að verða alveg helvíti flottur og hefur Elín konan hans
meira að segja grátbeðið hann um að safna fram á haust.
Morgan getur líklega alveg eins safnað mottu eins og öllu þessu hári
og gengur bara nokkuð vel viku gamalt skegg og á örugglega eftir að ver
nokkuð gott í lok mars.

Gömul mynd af Killernum með alvöru mottu
Killerinn er nú eldri en tveir vetur í þessum málum og var hér á árum áður
með myndarlega mottu.
Hann lætur ekki sitt eftir liggja og er farinn að safna eins og þeir strákarnir.
Ekki hefur nú heyrst af fleyrri meðlimum félagsins vera að safna en myndir
af þeim verða þá birtar um leið og þær berast.
Fróðlegt verður að sjá myndir af opnunni í Húseyjarkvísl þegar þeir félagar
opna ánna 1.apríl.
Þeim sem langar að styrkja þetta annars flotta málefni er bent á þennan link
en þar eru þeir bræður Magnum og Morgan að safna áheitum ásamt
vinnufélögum og erum komnir vel í 150.000.kr
http://www.karlmennogkrabbamein.is/keppnin/keppandi?cid=1654
10.3.2010
Með öngullinn í rassinum..
Við hjá mokveiðifélaginu viljum benda fólki á og minna á að nú fer að styttast í að Skjár 1 fari að sýna hinu frábæru þætti " Með öngullinn í rassinum,, þar sem þeir bræður Ási og Gunni Helgasynir fara á kostum ásamt ýmsum úr geiranum ( Veiðinni ). Höfum við fengið að sjá smá brot af seríunni og viti menn " tær snilgd ,, Eitthvað sem menn og konur mega ekki missa af og hverjum við alla sem vetllinga geta valdið að kaupa áskrift að Skjá 1 og viti menn það er lítið mál..
Mynd fenginn af láni hjá þeim félögum..
Þeir bræður eru komnir með heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast með framvindu mála hvernig gengur með þættina og allt þar á milli.. www.123.is/ongullinn endilega kíkið á það ..
Frétts hefur að Mokveiðimenn muni bregða fyrir í einhverjum þættinum og ekki megið þið missa af því..
6.3.2010
Menn urðu frá að hverfa !
Heldur betur var af fólki hjá okkur í gærkvöldi á opnuhúsi hjá Stangó og gekk þetta eins og í sögu.. 
Þeir bræður mættu og kynntu myndaséríu sína sem á eftir að slá í gegn á Skjá 1.
Óvæntur glaðningur var í verðlaun frá K.S og féll hann í heldur góðan jarðveg hjá gestum
Gunni fékk einn vinning eftir að hafa látið skipta um dráttarstjóra og hafði heppnina með því
Ási reyndi að bjarga sér með því að draga sjálfur en ekkert hafðist upp úr því..
Þeir fengu sér 1 bjór á mann þessir....... Einhvar annar á allan þennan bjór.....
Eitthvað af myndum er komið inná myndasafnið..
1.3.2010
Opið hús S.V.F.R

Nú á að vinna í happahylnum

Þá fer að koma að þriðja opna húsi vetrarins.
Föstudagskvöldið 5.mars kl 20:15 Háaleitisbraut 68
Dagskrá kvöldsins verður eins og vanalega ótrúlega skemmtileg og fer
hluti gömlu skemmtinefndarinnar þar með aðalhlutverk.
Þeir bræður Ási og Gunni verða á staðnum og ætla að reita af sér brandaranna og
jafnvel einhver föt ef stemming er fyrir hendi.
Ætla þeir að fara yfir veiðiþættina sem þeir voru að framleiða í sumar og verða sýndir
á skjá einum fljótlega.
þannig að mönnum gefst færi á að koma og sjá hvað er í vændum, en ef maður þekkir
þá bræður rétt verður grínið og glensið í fyrirrúmi.
Farið verður lauslega yfir hvað verður í þáttunum og sýndur einn þáttur

Hvor er hver?? Spurning um að fá sér aðeins stærri gleraugu
Einnig ætlar Jón G Bald að fara yfir perluna Stóru-Laxá í Hreppum af sinni einstöku snilld.

Gunnar Örlygsson og einn af dvergunum 7
Einnig verður Jónas með kynningu á Frances.is síðunni og flugunum sem hann
er með þar til sölu.
http://frances.is/
Myndagetaun verður á sýnum stað lauf-létt að vanda og hefur höfundur hennar
Þorsteinn Frímann Guðmundsson legið yfir veiðisvæðum s.v.f.r og þó sérstaklega
þeim svæðum sem Þórður Júlíusson hefur ekki farið á.
Happahylurinn heimsfrægi verður svo á sínum stað eins og venjuleg og ber enn
engin kreppumerki.
Heyrst hefur að Sogsmenn ætli að fjölmenn á svæðið og fylgjast með því að allt
fari löglega fram.
Sjáumst hress og kát
KV Skemmtinefndin

22.2.2010
Aðalfundur
Aðalfundur verður haldinn 31. mars í veiðihúsi Húseyjarkvísl og hefst hann stundvíslega kl 00:00 með einu glasi af C.M.
Dagskrá verður með almennu sniði s.s skýrsla stjórnar, rekstraráætlun og kosning í nefndir og stjórn, en núvernadi stjórn gefur áfram kost á sér..
Önnur mál verða líka á borðstólnum s.s inntaka nýrra félaga, hvort að árgjöld eigi að hækka úr 60.000 uppí 80.000 en árgjöld eru tengd eldsneytisverði og dollar.. Stofnun fæðingarorlofssjóðar sem gerir það að verkum að meðlimir geti komist klakklaust í veiði hvernig sem aðstæður eru heima við. Þú átt þinn rétt !

Og síðs af öllu skal útnefna heiðuslimur Mokveiðisfélagsins og koma nokkrir sterklega til greina.. Og þá skal telja í engri sérstakri röð..
Össur Skarphéðinsson fyrir Ískalda-urriðann
Bubbi fyrir að sleppa öllum fiski sem hann veiðir
Árni Bald fyrir að sleppa öllum seiðum sem hann veiðir
Gunni H og Ási H fyrir að vera svona anskoti líkir
Ólafur Ragnar fyrir að synja Icesave og útiloka alla erlenda veiðimenn í íslenskum ám...
kv Stjórnin
19.2.2010
Upprifjun
Eitthvað gleymdist alveg í allri veiðini síðastliðið sumar.. Við reyndum okkur í strandveiði með misjöfnum árangri.. Eigum nokkrar myndir frá því og setjum þær því hérna inn núna.. Reyndar er kreppa í veiðifréttum þannig að þetta var kærkominn gjöf í skammdeginu..
Eins og þið sjáið þá er enginn afli og spurning hvort að ekki þurfi að taka þessa menn á smá námsskeið í strandveiði fyrir komandi tímabil...
7.2.2010
Magnað Föstudagskvöld

Það var heldur betur mæting á fyrsta opnahúsið hjá S.V.F.R sem haldið var nú á Föstudagsvöld í húsakynjum Stangó. Fullt var út úr dyrum og varð fólk við að hverfa... Dagskráin var ekki að verri endanum þó svo að umfjöllun um Dalina hafi dottið niður vegna ófyrirsjáalega atburða, en það verður reynt að endurtaka þann atburð við næsta tækifæri.. Við látum myndirnar tala sínu máli..
Hérna er hægt að skoða myndirnar .

Flottir á því þessir .. Héldu barnum allveg uppi

Fékk Flott flugu box frá KRÖFLU í vinning í Happahylnum

Heppinn vinningshafi. Robbi fékk að vaska upp með strákunum og ganga frá..
3.2.2010
Opið hús S.V.F.R

Jæja þá er komið að opnu húsi hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur.
Föstudaginn 5.feb og opnar húsið kl 20:00
Dagskrá
*Farið verður yfir ný svæði í söluskrá S.V.F.R
*Guðni Guðbergsson frá veiðimálastofnun fer yfir veiðisumarið 2009 og verður með sjóðheita veiðispá fyrir veiðisumarið mikla 2010.
*Karl lúðvíksson fer yfir nýjustu þætti sína þar sem hann veiðir ásamt vinum sínum ásamt gömlum klippum
*Hjalti Björnsson formaður Fræðslunemdar ætlar að ræða um nýtt veiðisvæði félagsins Laxá í Dölum
*Myndagetraun verður á sínum stað
*Stútfullur happahylur sem allir geta veitt í
*Ískaldur á kantinum og þorramatur í smakk með fyrir þá sem þora...
Nú er um að gera að hita sig upp fyrir þorrablótin og slaka á sig einum jafnvel tveimur ísköldum...


Kv Skemmtinefndin
31.1.2010
Smá ís
Húseyjarhvísl 31.jan 2010
Þá er ekki nema tæpur mánuður í að við förum að renna fyrir birting og annað kvikt í Húseyjarhvísl. Ennþá er nokkuð um ís á ánni og verður eitthvað í það að allt verður farið af henni. Samt eru komnar lænur víðast hvar og er það áhyggjuefni þar sem fiskurinn hefur þá vakir til að læðast um.. En nú er bara að bíða og vona.
Húseyjarhvísl 31.jan 2010




