Færslur: 2012 Febrúar

18.02.2012 14:34

Nýr bíll í Mokveiðifélaginu


                          
                                   Þessi á eftir að taka sig vel út með veiðistangir út um allt
 
Morgan er komin á Crusier eins og Killerinn og Smiðurinn.
 
              

Um er að ræða 50ára afmælisútgáfu af Landcruiser 90 VX.
 
Þar með er Morgan tilbúinn fyrir veiðina og gædið í sumar.... 
nú getur vorið farið að koma.
 

16.02.2012 20:57

Skagafjörður


Skagafjörðurinn er tilbúinn fyrir fyrsta apríl emoticon

Ekki er laust við að það komi upp smá spenningur þegar maður keyrir yfir 
Húseyjarkvíslina þessa dagana, en vorveðrið sem hefur gengið yfir landið 
síðustu daga  hefur gjörsamlega tekið allan ís af efri hlutanum af ánni.

                        


Að vanda opna Mokveiðimenn ánna og ekki er annað hægt að segja að þetta 
líti betur út en mörg önnur ár.


                        

Ekki má þó alveg afskrifa vetur konung en nokkuð ljóst er að hann þarf
heldur betur að blása kulda svo þykkt lag af ís myndist aftur á ánna.

Nú er ekkert annað að gera en að bóna línuna einu sinni enn og láta sig 
dreyma næstu daga en það er rétt 1 og 1/2 mánuður í þetta eða 44 dagar og teluremoticon

01.02.2012 10:11

Útboð

 

Svo virðst sem flestir veiðileyfishafar eru að bjóða í ánar fyrir hvor öðrum sem að sjálfu sér er í lagi nema hvað það hækkar leyfin fyrir okkur hinum. Stjórn Mokveiðifélagsins hefur ákveðið að senda inn tilboð í helstu ár landsins eins og Blöndu, Norðurá, Jöklu , Vatndalsá og Rangárnar..

 

 

Ætlum við að bjóða 700 milljónir í pakkann og verður stönginn á meðalverði seld á rúmar 500.000kr á dag..

 

 

 

Til að mæta þessari hækkum þá verður aðeins boðið upp á Ks pylsur og hamborgarar í veiðihúsum og ætti þá fæðið að vera aðeins 50.000 á mann í 3 daga...  Þetta er aðeins skólabókadæmi...

 

  • 1
Flettingar í dag: 194
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 1279
Gestir í gær: 149
Samtals flettingar: 889254
Samtals gestir: 188321
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:15:27